Um okkur
HVERNIG VIRKAR ÞJÓNUSTAN?
Þegar þú átt rétt á flugbótum bjóðum við þér tvær leiðir til að fá greitt — þú velur þá sem hentar þér best.
1. Útgreiðsla strax
Hentar þeim sem vilja fá greiðsluna án tafar. Við metum kröfuna þína og ef við samþykkjum að kaupa hana, færðu greiðsluna samstundis — óháð því hvenær flugfélagið borgar. Ef flugfélagið neitar að greiða bætur, þá heldur þú samt sem áður greiðslunni frá okkur. Á móti kemur að við kaupum kröfuna þína á lægra verði, enda tökum við á okkur áhættuna á greiðslu og biðina eftir að greiðslan berist frá flugfélaginu.
- €250 krafa → þú færð €125
- €400 krafa → þú færð €200
- €600 krafa → þú færð €300
Athugið að það er alltaf mat Flugbóta hvort boðið sé upp á kaup á kröfunni samstundis.
2. Almenn afgreiðsla
Hentar þeim sem eru til í að bíða aðeins lengur og fá þá hærra verð fyrir sína kröfu. Við kaupum þá kröfuna á hærra verði, en greiðum þér út þann dag sem greiðslan berst okkur frá flugfélaginu.
- €250 krafa → þú færð €172,5
- €400 krafa → þú færð €276
- €600 krafa → þú færð €414
Allar greiðslur eru í íslenskum krónum og miðast við gengi evru þann dag sem flugatvikið átti sér stað.
PERSÓNUVERNDARSTEFNA FLUGBÆTUR.IS
Persónuverndarstefna Flugbætur.is og HF15 ehf., kt. 620824-1000, er aðgengileg hér.
UM OKKUR
Vefsíðan Flugbætur.is er rekin af ESJA Legal ehf. og hægt er að hafa samband við okkur með því að senda okkur tölvupóst: